Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Vatn í eyrunum eftir sund, óþægilegur hávaði í flug-, bíl- eða lestarferð,
hrotur í rekkjunaut, sónn í eyrunum eftir rokkhljómleika eða höfuðverkur eftir
að hafa notað hjólsög. Flestir kannast við eitthvað af þessu, en hvað er til ráða?
Að loka algjörlega fyrir eyrun er ekki góð lausn.
Við viljum ekki aðeins vera laus við óþægileg hljóð því samtímis viljum við geta heyrt það
sem fram fer umhverfis okkur.
Hollenska fyrirtækið Alpine hefur nú þróað heyrnarsíur með gleypnisíum.
Síurnar gleypa mesta hávaðann, sem berst manni til eyrna, en samt má haldið uppi samræðum.
Alpine hefur þróað heyrnarsíur sem henta við fimm mismunandi aðstæður:
Heyrnarsíurnar FlyFit® henta þeim sem eru í sumarleyfi s.s. vegna breytilegs þrýstings og óþægilegs hávaða á ferð í bíl, lest eða flugvél. Þær henta einnig vel ef hávaði er á svefnstað.
Margir eiga lífsförunaut sem hrýtur en fyrir þá hefur Alpine hannað síurnar SleepSoft®. Í þeim eru gleypnisíur sem hleypa í gegn hljóði á ákveðnu tíðnisviði en sía frá hljóð á öðrum tíðnisviðum. Þær sía burt umferðarhljóð, hrotur, hávaða frá nágrönnum og annan umhverfishávaða en hleypa í gegn hljóðum með hærri tíðni s.s. barnsgráti, hringingu í dyrabjöllu, pípi í reykskynjara og són vekjaraklukku þannig að þau heyrast vel.
Það getur verið skemmtilegt að vera á rokkhljómleikum eða diskói en það er ekki notalegt að hafa són í eyrunum í marga daga á eftir. Hávaði sem berst að eyrum á skemmtistað getur valdið varanlegum skaða og fjöldi fólks verður fyrir þannig skaða. Fyrir þá sem hlusta á háværa tónlist framleiðir Alpine heyrnarsíurnar PartyPlug®. Með þessar síur í eyrunum er auðveldara að halda uppi samræðum við háværar aðstæður en maður nýtur samt tónlistarinnar og þreytist minna.
Margir, sem vilja stunda sund, þola ekki að fá vatn í eyrun, það á einnig við börn sem eru með ventil í hljóðhimnunni. Margir nota óþægilega vax-, frauð- eða bómullartappa. Fyrir sundfólk hefur Alpine þróað SwimSafe® heyrnarsíurnar. Með þær í eyrunum má halda uppi samræðum en jafnframt hindra þær að vatn berist inn í eyrun í sundi.
Þegar menn eru að bora, mala, fræsa eða saga eru þeir oft í miklum hávaða en þessi störf eru oft unnin utan vinnutíma. Á vinnustöðum er lögboðið að nota heyrnarhlífar ef hávaði fer yfir 80 dB og sem betur fer fjölgar þeim sem nota þær einnig utan vinnutíma s.s. heima við. En margt kemur í veg fyrir að fólk verji eyrun utan vinnutíma s.s. lélegir, óþægilegir eyrnatappar, dýrar heyrnahlífar sem loka á öll hljóð. Nú eru til þægilegar heyrnarsíur WorkSafe® sem endast vel og eru með sérstaka gleypnisíu þannig að tal, útvarp og umhverfishljóð heyrast vel.
Dutch Consumer association hefur prófað Alpine heyrnarsíurnar og þær hafa staðist prófin sem vara í besta gæðaflokki. Í blöðum síanna er sérstakt, sterkt, mjúkt og eftirgefanlegt plast. Líkamshitinn veldur því að þegar sía er sett í eyra lagar hún sig mjög fljótt að hlustinni. Auðvelt er að þrífa súrnar með vatni og mildri sápu og þær eiga að endast að minnsta kosti í eitt ár.
Hjá Heyrn eru til sölu allar gerðir Alpine-heyrnarsía og parið kostar kr: 2.200-
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang:
heyrn@heyrn.is
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is