Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Til eru nokkrar gerðir af búnaði, sem velja má um, til að hlífa heyrninni. Þessi búnaður er mismunandi allt frá hefðbundnum frauð- eða silíkontöppum og heyrnarhlífum, sem loka næstum á allt hljóð, til heyrnarsía sem dempa skaðlegan hávaða án þess að breyta blöndun og tónblæ hljóðsins, þær dempa allar tíðnir hljóðs álíka mikið.
Heyrnarsíur henta vel fyrir þá sem þurfa að verjast hávaða svo sem fyrir atvinnutónlistarfólk, hljóðmenn, tannlækna, hljómleikagesti, barþjóna, vélhjólamenn, iðnaðarmenn, vélstjóra, flugmenn o.fl.
Sérsmíðaðar heyrnarsíur eru gerðar eftir afsteypu úr hlust en uppistaðan í þeim eru hljóðsíur frá Etymotic – ER9, ER15 eða ER25. Þannig síur dempa allar tíðnir hljóðs svipað og eru þess vegna mjög vinsælar hjá tónlistarfólki.
Velja má á milli ER9, ER15 eða ER25. Auðvelt er að skipta um hljóðsíu þannig að velja má síu í samræmi við aðstæður.
Heyrnarsíurnar eru smíðaðar hjá Heyrn samkvæmt stöðlum GN ReSound í Noregi og er afgreiðslutími þrír til sjö dagar.
Verð á pari heyrnarsía er kr: 39.800-
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang:
heyrn@heyrn.is
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is