Mótataka af eyrum
3D skönnun (3D scan)
Hjá okkur er 3D skanni sem kallast Otoscan. Þar er lítil myndavél sem notuð er til að 3D skanna eyrun bæði að innan og utan. Þetta flýtir fyrir smíði á hlustastykki á heyrnartækjum þar sem hægt er að senda upplýsingar rafrænt. Þessi aðferð er mun hentugri en sílíkon mótatakan þar sem minni hætta er á að erta hlustina og óþægindunum sem fylgir að fá leir í eyrun og tekur styttri tíma.
