Persónuleg þjónusta
Hjá Heyrn er í boði fagleg heyrnargreining, ráðgjöf við val á heyrnartækjum, heyrnarvernd og heyrnartæki sem eru lánuð til reynslu.
Við erum með löggilda heyrnarfræðinga sem veita persónulega þjónustu og aðstoða við val á heyrnartækjum eða heyrnarsíum. Fyrsta skrefið er
að bóka tíma í heyrnargreiningu í síma 534-9600, senda okkur tölvupóst á heyrn@heyrn.is eða bóka með appinu Noona.
Vefverslun Heyrnar er opin allan sólarhringinn, þar getur þú fundið alla helstu varahluti og aukahluti fyrir heyrnartækin þín.
ReSound Custom
Opnaðu hugann og prófaðu nýja tegund tækja
Ný tegund sérsmíðaðra tækja sem sameina heyrnartæki og heyrnartól. Streymdu símtölum, tónlist eða hverju sem þú vilt beint í heyrnartækin, hvar og hvenær sem er. Bókaðu tíma hjá löggiltum heyrnarfræðingi!
Heyrnartækin okkar
Við erum með nokkrar gerðir af heyrnartækjum frá ReSound. Kynntu þér mismunandi eiginleika tækjanna og berðu saman við þínar þarfir.