Um Heyrn

Markmiðið með fyrirtækinu er að flestir landsmenn heyri vel.

Við stuðlum að því með vandaðri heyrnarþjónustu þar sem faglegar áherslur skipta mestu máli. Við erum með fjölbreytt úrval heyrnartækja sem útbúin eru nýjustu tækni ásamt fræðslu um heyrnarvernd. Heyrn er fjölskyldurekið fyrirtæki sem var opnað 1. júní 2007. Samstarfsaðili Heyrnar, ReSound í Danmörku hefur reynst afar vel enda hefur ReSound yfir hálfrar aldrar reynslu í hönnun og smíði á heyrnartækjum.

 

Þetta er fagfólkið sem er tilbúið að aðstoða þig hér hjá Heyrn.

Ellisif K. Björnsdóttir

Forstjóri og heyrnarfræðingur


Löggiltur heyrnarfræðingur (BS audionom) menntuð við Gautaborgarháskóla. Hefur starfað frá árinu 2002 hér á landi við heyrnarþjónustu og ráðgjöf í sínu fagi.

Lesa meira

Urður Björg Gísladóttir

heyrnarfræðingur


Löggiltur heyrnarfræðingur (BS audionom)  menntuð við Gautaborgarháskóla. Þar áður hefur hún starfað við umönnun þroska- og hreyfiskertra..

Lesa meira

Gísli R. Stefánsson

Framkvæmdarstjóri og hlustastykkjasmiður


Meðeigandi. Sinnir viðgerðum og lagfæringum á hlustarstykkjum hjá Heyrn. Lærði hlustarstykkjasmíði í Noregi 2007. Menntaður flugvirki og starfar við það.

Lesa meira

Una V. Gísladóttir

Hönnunar og markaðsfulltrúi


Sinnir heimasíðu og markaðsefni Heyrnar. Una lauk BA í Mass Media frá San Marcos University 2018 og lauk síðar atvinnuflugmannskírteini 2021.

Lesa meira

Staðsetning

Fáðu faglega ráðgjöf hjá löggiltum heyrnarfræðingi.

Heyrðu í okkur!

Afgreiðslutímar:

Opið virka daga frá 9:00-16:30*

*Á þriðjudögum er opið lengur ef þörf er á*

Sumarlokun: 18. júlí - 4. ágúst

Vinsamlegast sendið póst á heyrn@heyrn.is í neyðartilfellum á lokunartímum

Sendu okkur skilaboð