Tengdu, eigðu samskipti og taktu þátt í lífinu

Með okkar tækni, sem byggir á þráðlausri tengingu, geturðu streymt, stjórnað og sniðið hljóðið í ReSound heyrnartækjunum, eins og þú vilt. Þú færð ánægju af að geta heyrt skýrt og tekið að fullu þátt í að tala við fólk við erfið heyrnarskilyrði.

ReSound heyrnartækin eru eins og örlítil ósýnileg heyrnartól. Notuð er sama 2,4 GHz tæknin og fyrir þráðlaus net og lyklaborð. Þess vegna er hægt að láta heyrnartækin tengjast þráðlaust með UniteTM-kerfinu við önnur tæki s.s. hljóðnema, sjónvarp, hljómtæki og farsíma – þau tengjast samtímis við þrjú tæki á auðveldan hátt og draga langt.

Fjölhljóðnemi+


Heyrðu betur í klið með Fjölhljóðnema+
Kynntu þér fyrsta fjarstýrða hljóðnemann í heimi með Auracast™. Veitir stuðning í aðstæðum þar sem erfitt er að heyra og aukahljóð lækka að minnsta kosti 10,6 dB*.

Drægni allt að 25 metra

*Samhæft við ReSound Nexia og ReSound Vivia


Sjónvarpsliði+


Heyrðu sem best í sjónvarpinu, sérstaklega þegar það verður hávaðasamt heima.

Notaðu Sjónvarpsliða+ til að senda hljóðið beint í heyrnartækin þín með þeim hljóðstyrk sem þú velur.

Tilbúið fyrir Bluetooth Auracast útsendingarhljóð. Paraðu tæki auðveldlega við sjónvarpsliðann og stilltu hljóðstyrk sjónvarpsins og umhverfishljóðin með því að nota ReSound Smart 3D™ appið.

*Samhæfður við ReSound Nexia og ReSound Vivia heyrnartæki


Fjölhljóðneminn


Njóttu framúrskarandi talskilnings svo þú getir einbeitt þér að þeim hljóðum sem þú vilt heyra þó að hávaði sé í umhverfinu. Nær sambandi við tónmöskva.


Símaklemma


Að heyra vel í símanum hvar sem er Símaklemman+ flytur hljóðið kristaltært og snurðulaust beint í heyrnartækin. Svo maður getur notið símtalsins betur, jafnvel í hávaða. Handfrjáls búnaður.


Sjónvarpsliði


Að njóta þess að fá hljóðið úr sjónvarpinu milliliðalaust í heyrnartækin, drægi er allt að 7 m.


 
 

Fjarstýring 2


Með einfaldri fjarstýringu getur maður stillt hljóðstyrk og skipt á milli forrita. Auðvelt er að sjá hvernig stillingin er á þægilegum skjá.


Fjarstýring


Með einfaldri fjarstýringu getur maður stillt hljóðstyrk og skipt á milli forrita án þess að nota skjá.


 

Vertu tengdur

Njóttu strax tengimöguleika framtíðarinnar

 

 
 
 

Vantar þig heyrnartæki?