
Minni og þægilegri tæki
13/01/2009
Meiri hávaði í tunnumótmælum en þotuhreyfli: Getur valdið heyrnarskaða á sekúndum
25/10/2010Hönnun á heyrnartækjum fleygir fram

Texti viðtalsins á læsilegu formi
Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is
Fólk byrjar á því að panta sér tíma og koma í heyrnarmælingu og út frá því er síðan unnið. Það fer nokkuð eftir því í hvernig hljóðheimi fólk starfar í hvað það vill láta laga. Þeir sem starfa til dæmis við kennslu, eru mikið á fundum eða vinna í vélavinnu hafa allir ólíkar þarfir. Tækin eru valin eftir því hvað þarf að bæta og virkni þeirra er sniðin að þörfum hvers og eins. Flestir fá síðan lánaðar eina eða tvær gerðir tækja til að prófa við sínar aðstæður. Í nokkra mánuði eftir það fer síðan fram endurhæfing á heyrninni þar sem fólk kemur og lætur stilla tækin öðru hvoru en hækka má í þeim þegar hljóðin hafa vanist. Það er mikilvægt að yfirfara tækin reglulega og láta stilla þau svo bestur árangur náist. Mjög margt hefur áhrif á heyrnina, erfðir, aldurinn, hávaði og lyf og ýmsir sjúkdómar. Heyrnin getur verið farin að gefa sig um fertugt og jafnvel fyrr hjá iPod-kynslóðinni,« segir Ellisif Katrín Björnsdóttir
Hálfrar aldar reynsla
Ellisif Katrín er útskrifaður heyrnarfræðingur frá Gautaborgarháskóla og hefur þar með hlotið löggildingu sænskra heilbrigðisyfirvalda. Hún opnaði ásamt fjölskyldu sinni Heyrn ehf í Kópavogi fyrir um tveimur árum og valdi sér sem samstarfsaðila fyrirtækið ReSound í Danmörku. Hún segir Danina hafa reynst einstaklega vel enda hafi þeir yfir hálfrar aldar reynslu í að hanna og smíða heyrnartæki. »Þegar ég hóf nám fyrir tíu árum síðan var enn þá verið að stilla flaumræn heyrnartæki með skrúfjárni. Nú eru heyrnartæki orðin flottar stafrænar græjur og í raun bara fylgihlutur á eyrað eins og ipod eða sími. ReSound framleiðir margar tegundir tækja og af hverri tegund eru nokkrar svo þetta er dálítið eins og þegar maður velur sér bíl. Maður velur sér tæki í samræmi við notkun og lit sem fer manni vel. Danirnir eru flinkir í þessu og líka smart í sinni hönnun,« segir Ellisif Katrín.
Nýjasta gerð heyrnartækjanna kallast be by ReSound. Þau eru felld inn í hlustir, það loftar með þeim og þau gefa skýra og eðlilega heyrn. Hljóðnemanum er komið fyrir í skjól í ytra eyranu sem fangar hljóðið fyrir hann og kemur í veg fyrir vindgnauð. ReSound hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir hönnun tækjanna og einnig dönsk nýsköpunarverðlaun. Þessi tæki hafa verið vinsæl meðal yngsta notendahópsins, það á einnig við um sérstakar heyrnasíur sem draga úr hljóðstyrk en þær hafa verið vinsælar hjá tónlistarmönnum hér á landi. »Að meðaltali líða sjö ár frá því að fólk uppgötvar heyrnaskerðingu þar til það leitar sér aðstoðar. Þetta er ótrúlega langur tími en það fælir kannski suma frá að hafa átt ömmu eða afa með flaumræn heyrnartæki á eyrunum sem voru eins og banani sem pípti í tíma og ótíma. Fólk þarf að bregðast við heyrnaskerðingu því heilinn er svo fljótur að gleyma hljóðunum og þá venst fólk á að heyra ekki ákveðin hljóð og bregður þegar það fer að heyra á ný skrjáf í dagblöðum og annað slíkt. Þegar ég hóf nám var talað um að 10 prósent fólks væru heyrnaskert en nýlegar evrópskar rannsóknir sýna aukningu upp í 16 prósent. Þegar kemur að tónleikum held ég að hér sé ríkjandi kæruleysi og fólk spyr hvort það eigi virkilega að vera með tappa í eyrunum þegar það vill hlusta en heyrnarsíur sem settar eru í eyrun draga einfaldlega úr hávaða án þess að loka fyrir hann og tóngæðin batna« segir Ellisif Katrín.
Grein í Morgunblaðinu